Fótbolti

Markalaust í Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sergio Busquets í baráttu við Roman í leiknum í kvöld.
Sergio Busquets í baráttu við Roman í leiknum í kvöld. Nordic Photos / AFP

Grannaslag Espanyol og Barcelona í fjórðungsúrslitum spænsku bikarkeppninnar lauk með markalausu jafntefli í kvöld.

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld en var skipt af velli á 68. mínútu. Leikurinn var heldur bragðdaufur en liðin mætast á nýjan leik í næstu viku á heimavelli Barcelona.

Valencia vann Sevilla, 3-2, í hinum leik kvöldsins í keppninni. David Villa, Ruben Baraja og Juan Mata skoruðu mörk Valencia en Luis Fabiano mörk Sevilla.

Tveir leikir fara fram í keppninni annað kvöld. Athletic Bilbao tekur á móti Sporting de Gijon annars vegar og Real Mallorca á móti Real Betis hins vegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×