Fótbolti

Laporta segir Manchester City hafa hafnað tilboði Barca í Robinho

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robinho fer ekki til Barcelona.
Robinho fer ekki til Barcelona. Mynd/AFP

Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur sagt það opinberlega að Robinho sé ekki á leiðinni til Evrópumeistaranna þar sem að Manchester City hafi hafnað tilboði félagsins í Brasilíumanninn.

Robinho hefur verið orðaður við Camp Nou síðan í sumar og spænskir fjölmiðlar fjölluðu um það að kaup Barcelona á Robinho væru í spilunum nú þegar félagsskiptaglugginn opnaði í janúar.

Laporta segir í viðtali við spænska blaðið Sport að City hafi hafnað tilboði þeirra og þeir ætli ekki að hækka sig.

„Við erum ánægðir með leikmannahópinn okkar og þurfum ekkert að bæta við hann nema eitthvað sérstakt komi upp," sagði Laporta við spænska Sport-blaðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×