Fótbolti

Garcia vill fá Bilic til Real Madrid

Nordic Photos/Getty Images

Forsetaframbjóðandinn Eduardo Garcia hjá Real Madrid segist hafa hug á því að fá Króatann Slaven Bilic til að taka við þjálfun liðsins á næstu leiktíð ef hann nær kjöri sem forseti.

"Bilic býr til góðan liðsanda og hefur góða stjórn á liðinu í búningsherberginu. Hann spilar líka sóknarknattspyrnu," sagði Garcia, sem áður hefur lýst því yfir að hann ætli að kaupa Didier Drogba frá Chelsea ef hann nær kjöri.

Slaven Bilic er landsliðsþjálfari Króata í knattspyrnu og hefur náð ágætum árangri með liðið. Hann hefur verið nokkuð eftirsóttur undanfarið og hefur m.a. verið orðaður við félög á Englandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×