Tónlist

Klassík í hádeginu

Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Klassík í hádeginu.
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Klassík í hádeginu.

Íslenskir tónlistarunnendur hafa nóg við að vera nú í haust og vetur, en um þessar mundir er að hefjast fjöldi tónleikaraða sem munu ylja landsmönnum um hjartarætur í svartasta skammdeginu. Ein slík tónleikaröð hefst á morgun; Klassík í hádeginu nefnist hún og er sprottin af samstarfi SÁÁ, menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Nínu Margrétar Grímsdóttur píanóleikara, en hún er listrænn stjórnandi raðarinnar.

Nína Margrét hefur fengið til liðs við sig þjóðþekkta tónlistarmenn á borð við Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara, Gunnar Kvaran sellóleikara, Hönnu Dóru Sturludóttur söngkonu, Peter Máté píanóleikara, Sesselju Kristjánsdóttur söngkonu, Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikara og Svövu Bernharðsdóttur víóluleikara. Þau munu aðstoða hana við að töfra fram fagra tóna í hádegishléum í vetur. Tónleikarnir fara fram fyrstu vikuna í hverjum mánuði og er röðin áframhald sams konar tónleikaraðar sem haldin var mánaðarlega síðastliðinn vetur í húsnæði SÁÁ við góðar undirtektir bæði gesta og gagnrýnenda.

Fyrstu tónleikarnir í röðinni fara fram kl. 12.15 á morgun í Gerðubergi og á sama tíma á föstudag í Von, tónleikasal SÁÁ. Þá munu þau Nína Margrét og Arnþór Jónsson sellóleikari flytja verk eftir Webern og Brahms. Í Gerðubergi gefst gestum kostur á að snæða hádegisverð fyrir eða eftir tónleikana og því tilvalið fyrir hópa sem vilja gera sér glaðan dag að njóta tónlistar og veitinga í menningarmiðstöðinni. Miðaverð er 2.000 kr. og 1.000 kr. fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja.

Menningarmiðstöðin Gerðuberg er til húsa við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti og Von, hús SÁÁ, er í Efstaleiti 7 í Reykjavík.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.