Íslenski boltinn

Keflavíkurkonur í Val

Mynd/Vilhelm

Systurnar Björg Ásta og Guðný Petrína Þórðardætur hjá knattspyrnuliði Keflavíkur skrifuðu í dag undur tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals.

Það var fotbolti.net sem greindi frá þessu, en þær systur munu vafalítið styrkja lið Vals enda hafa þær verið lykilmenn hjá suðurnesjaliðinu.

Guðný er 25 ára gömul og leikur í stöðu framherja. Hún skoraði fimm mörk í Landsbankadeildinni í sumar og á að baki einn A-landsleik.

Björg er 23 ára gömul og hefur spilað átta landsleiki. Hún spilaði sextán leiki fyrir Keflavík í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×