Afleit staða Giftar 12. nóvember 2008 00:01
Óvíst er að eignir fjárfestingafélagsins Giftar dugi fyrir skuldum. Samkvæmt skýrslu stjórnar Giftar 15. júní í fyrra, námu heildarskuldir og skuldbindingar félagsins ríflega 30 milljörðum króna. Þá námu eignirnar tæpum 60 milljörðum. Helstu eignir Giftar í skráðum félögum voru fólgnar í hlutum í Kaupþingi og Existu. Kaupþingshluturinn er horfinn og Existuhluturinn er nú 2,8 milljarða króna virði. Þá á félagið hlut í Icelandair, á móti Finni Ingólfssyni. Ætla má að virði hlutarins sé nú um milljarður. Gift átti einnig hluti í Landsbanka og Glitni. Þá átti félagið, þegar síðast fréttist, hlut í Straumi Burðarási. Eignir Giftar í óskráðum félögum námu fyrir ári, um einum milljarði króna að nafnvirði. Markaðurinn hefur um nokkurra vikna skeið reynt að ná sambandi við Kristinn Hallgrímsson, formann skilanefndar Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, Sigurjón Rúnar Rafnsson, stjórnarformann Giftar og Benedikt Sigurðsson framkvæmdastjóra Eignarhaldsfélagsins. Það hefur með öllu reynst árangurslaust, að því frátöldu að Benedikt sagðist engar upplýsingar getað gefið. Á fimmta tug þúsunda manna átti réttindi í Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum og átti rétt á hlutum í Gift. Finnur Ingólfsson, stjórnarformaður Samvinnusjóðsins, stærsta einstaka hluthafanum, sagðist ekkert vita um stöðu mála. Hann biði eins og aðrir hluthafar. Menn sem Markaðurinn hefur rætt við segja augljóst hvert stefni. Einn tók jafnvel svo til orða að aðeins kistulagningin væri eftir.
Markaðir Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sjá meira