Fótbolti

Mourinho gagnrýnir Barcelona

Eiríkur STefán Ásgeirsson skrifar
Jose Mourinho, stjóri Inter.
Jose Mourinho, stjóri Inter. Nordic Photos / AFP

Jose Mourinho hefur gagnrýnt Barcelona og sakar hann Marc Ingla, varaforseta félagsins, um lygar.

Ingla sagði að Mourinho hefði beðið um að fá að funda með fulltrúum félagsins og útlista hugmyndir sínar fyrir framtíð þess.

„Ég hef engan áhuga á að eyða tíma í hluti sem skipta mig engu máli. Aðeins Inter skiptir mig nú máli. En herra Ingla laug því það voru hann og herra Beguiristain sem báðu mig um að funda með sér í Lissabon."

„Barcelona er nú að vinna að því að ná árangri, rétt eins og ég er að gera hjá Inter. En ég vil ekki að Ingla hafi einhver áhrif á mitt orðspor."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×