Fótbolti

Áhorfendur Celtic til vandræða

NordicPhotos/GettyImages

Knattspyrnusamband Evrópu hefur hrundið af stað rannsókn á atviki sem átti sér stað á leik Celtic og Manchester United í Meistaradeildinni í vikunni þar sem ungur stuðningsmaður hljóp inn á völlinn.

Celtic er enn á skilorði vegna svipaðs atviks sem átti sér stað á síðustu leiktíð þegar stuðningsmaður hljóp inn á völlinn og veittist að markverðinum Dida hjá AC Milan.

Celtic gæti þurft að greiða ríflega 26,000 punda sekt ef aganefnd knattspyrnusambands Evrópu úrskurðar að þarna hafi verið um skilorðsbrot að ræða.

Niðurstöðu í málinu er að vænta þann 13. nóvember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×