Fótbolti

Eiður á bekknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári er ekki í byrjunarliðinu í dag.
Eiður Smári er ekki í byrjunarliðinu í dag. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona sem mætir Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona sem mætti Real Madrid í síðustu helgi en varamaður hans í þeim leik, Sergio Busquets, tekur stöðu hans í byrjunarliðinu nú.

Lionel Messi, Samuel Eto'o og Thierry Henry eru í fremstu víglínu og þeir Xavi og Seydou Keita með Busquets á miðjunni.

Leikurinn hefst klukkan 18.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×