Fótbolti

Inter að undirbúa risatilboð í Eto'o

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samuel Eto'o í leik með Barcelona.
Samuel Eto'o í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Eftir því sem ítalskir fjölmiðlar halda fram er Inter að undirbúa 32 milljóna punda tilboð í Samuel Eto'o, leikmann Barcelona.

Eto'o hefur einnig verið orðaður við Tottenham en Börsungar hafa víst hug á að fá Dimitar Berbatov í skiptum fyrir Eto'o.

En ef rétt reynist að Inter sé reiðubúið að opna veskið fyrir Eto'o þykir vonlítið fyrir Tottenham að eltast við hann.

Inter þarf á nýjum sóknarmönnum að halda en líklegt er að bæði Hernan Crespo og Julio Cruz séu á leið frá félaginu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×