Enski boltinn

Vofa Mourinho mun alltaf elta Grant

Avram Grant, þjálfari Chelsea.
Avram Grant, þjálfari Chelsea.

Avram Grant, þjálfari Chelsea, segist gera sér grein fyrir því að hann muni aldrei fá stuðningsmenn Chelsea til að gleyma Jose Mourinho jafnvel þótt hann vinni titla með félaginu.

"Ég held að samanburðurinn við Jose muni aldrei hætta. Jafnvel þótt ég vinni titla. En mér er sama," segir Grant sem fékk að heyra það óþvegið frá serbneska framherjanum Mateja Kezman í gær. Kezman, sem var í sigurliði Fenerbahce gegn chelsea í meistaradeildinni sagði að Chelsea hefði aldrei tapað leiknum með Mourinho við stjórnvölinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×