Enski boltinn

Hermann með gegn West Brom

Óskar Hrafn Þorvaldsson skrifar
Hermann Hreiðarsson hefur hrist af sér meiðslin og spilar væntanlega sinn fyrsta leik á Wembley.
Hermann Hreiðarsson hefur hrist af sér meiðslin og spilar væntanlega sinn fyrsta leik á Wembley.

Hermann Hreiðarsson verður í leikmannahópi Portsmouth sem mætir West Brom í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley á morgun. Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hermanns, við Vísi í kvöld.

Hermann fékk skurð fyrir ofan hásin í leik Portsmouth og Wigan um síðustu helgi og þurfti að sauma fjögur spor. Hann hefur síðan verið í stífri endurhæfingu. Ólafur sagði við Vísi að Hermann hefði komist í gegnum æfingu fyrr í dag og væri klár. "Það á svo eftir að koma í ljós hvort hann verður í liðinu. Það veit enginn fyrr en á morgun," sagði Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×