Körfubolti

NBA í nótt: Detroit stöðvaði Phoenix

Shaquille O´Neal og Rasheed Wallace slógu á létta strengi í nótt
Shaquille O´Neal og Rasheed Wallace slógu á létta strengi í nótt NordcPhotos/GettyImages

Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Þar bar hæst að Detroit stöðvaði sjö leikja sigurgöngu Phoenix og Philadelphia skaust í sjötta sæti Austurdeildarinnar með góðum útisigri á Boston.

Detroit hafði verið í nokkrum vandræðum áður en liðið tók á móti Phoenix í nótt en náði að vinna sigur 110-105 sigur í framlengdum leik þrátt fyrir að vera án Richard Hamilton sem var meiddur.

Amare Stoudemire skoraði 33 stig fyrir Phoenix í leiknum en Chauncey Billups skoraði 9 af 32 stigum sínum í framlengingunni fyrir Detroit.

Philadelphia hefur komið nokkuð á óvart að undanförnu og vann í nótt mjög óvæntan sigur á Boston á útivelli 95-90 með góðum endaspretti í fjórða leikhlutanum. Philadelphia náði 19-0 spretti í fjórða leikhlutanum og tryggði sér 18. sigur sinn í síðustu 23 leikjum. Andre Iguodala skoraði 28 stig fyrir gestina en Kevin Garnett var stigahæstur hjá Boston með 18 stig.

Miami vann sjaldgæfan sigur þegar það lagði Milwaukee á heimavelli 78-73. Chris Quinn kom inn í byrjunarlið Miami í leiknum og setti persónulegt met með 24 stigum. Michael Redd skoraði 24 stig fyrir Milwaukee. Þetta var í annað sinn á innan við viku sem Miami vinnur Milwaukee og er það eina liðið sem Miami hefur unnið oftar en einu sinni í vetur. Miami hefur aðeins unni 13 leiki allt tímabilið.

New Jersey vann auðveldan útisigur á grönnum sínum í New York 106-91 en þetta var þó aðeins fyrsti sigur New Jersey í rimmum liðanna í vetur. Vince Carter skoraði 27 stig fyrir New Jersey en Jamal Crawford 26 fyrir New York. New Jersey hefur aðeins unnið 30 af 71 leikjum sínum í vetur en er samt hársbreidd frá því að ná inn í úrslitakeppnina í Austurdeildinni.

Denver vann þriðja útisigur sinn í röð eftir sex útitöp í röð þar á undan þegar liðið lagði Memphis 120-106. JR Smith var stigahæstur hjá Denver með 27 stig af bekknum en Rudy Gay skoraði 30 fyrir Memphis. Denver er í hörkubaráttu um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina í Vesturdeildinni.

Houston lagði Sacramento á heimavelli 108-100 og færði þjálfaranum Rick Adelman þar með 800. sigur sinn á ferlinum. Hann er aðeins 13. þjálfarinn í sögu NBA til að ná 800 sigrum á ferlinum. Rafer Alston skoraði 28 stig fyrir Houston í leiknum en Kevin Martin skoraði 18 stig fyrir Sacramento.

Seattle vann nokkuð óvæntan sigur Portland 97-84. Kevin Durant skoraði 23 stig fyrir Seattle en Martell Webster skoraði 22 stig fyrir Portland.

Loks vann LA Lakers mikilvægan sigur á Golden State á útivelli í æsispennandi framlengdum leik 123-119. Kobe Bryant skoraði 30 stig fyrir Lakers, hirti 11 fráköst og gaf 7 stoðsendingar og Lamar Odom skoraði 23 stig og hirti 21 frákast.

Baron Davis skoraði 30 stig, hirti 9 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Golden State, Stephen Jackson skoraði 29 stig, Al Harrington skoraði 19 stig og hirti 12 fráköst og Monta Ellis skoraði 18 stig, hirti 9 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.

Þetta var í annað sinn á tveimur dögum sem liðin mættust og unnu þau sinn hvorn leikinn á útivelli.  

Staðan í Austur- og Vesturdeild

Svona liti úrslitakeppnin út ef hún byrjaði í dag

NBA bloggið á Vísi

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×