Fótbolti

Eiður Smári í byrjunarliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Skyldi Eiður Smári skora í kvöld?
Skyldi Eiður Smári skora í kvöld? Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Valencia í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti.

Thierry Henry er á bekknum en Ronaldinho er ekki í leikmannahópnum. Þetta er síðari leikur liðanna í undanúrslitunum en fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli á heimavelli Börsunga.

Byrjunarlið Barcelona: Valdes; Zambrotta, Puyol, Milito, Abidal; Toure Yaya, Xavi, Eiður Smári; Bojan, Eto'o, Iniesta.

Varamenn: Pinto, Thuram, Sylvinho, Edmilson og Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×