Fótbolti

Athletic Bilbao dæmdur sigur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Armando Riviero, markvörður Bilbao, eftir að hafa fengið flöskuna í hausinn.
Armando Riviero, markvörður Bilbao, eftir að hafa fengið flöskuna í hausinn.

Spænska knattspyrnusambandið ákvað í dag að dæma Athletic Bilbao 2-1 sigur gegn Real Betis. Flauta varð leikinn af eftir að flösku var kastað í höfuð markvarðar Bilbao þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka.

Staðan var 2-1 fyrir Bilbao þegar leik var hætt og munu það verða skráð úrslit leiksins. Þá fær Real Betis tveggja leikja heimaleikjabann og sekt upp á rúmlega milljón íslenskra króna.

Áhorfendur sáu til þess að lögreglan gat handtekið þann stuðningsmann sem kastaði flöskunni. Myndband af atvikinu má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×