Fótbolti

Markvörður Athletic fékk flösku í hausinn (myndband)

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stuðningsmenn Real Betis hafa oft verið til vandræða að undanförnu.
Stuðningsmenn Real Betis hafa oft verið til vandræða að undanförnu. Nordic Photos / AFP

Leik Athletic Bilbao og Real Betis var flautaður af á 72. mínútu eftir að flösku var kastað í haus Armando Riviero, markvarðar Athletic.

Myndband af atvikinu má sjá hér. Athletic var nýbúið að ná forystunni í leiknum þegar dómari leiksins, Carlos Gomez, flautaði leikinn af.

Eins og sést á myndbandinu blóðgaðist Armando í andlitinu og þurfti að sama saman skurð undir auganu hans. Það sést einnig á myndbandinu að áhorfendur sáu til þess að lögreglan gat handtekið þann sem kastaði flöskunni.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist því Juande Ramos, fyrrum þjálfari Sevilla og núverandi stjóri Tottenham, missti meðvitund eftir að stuðningsmenn Betis köstuðu flösku í hann í fyrra.

Forráðamenn Athletic fara nú fram á að þeim verði dæmdur sigurinn í leiknum. Sem fordæmi nefna þeir landsleik Svíþjóðar og Danmerkur þar sem leikurinn var flautaður af eftir að stuðningsmaður Dana hljóp inn á völlinn og réðst að dómara leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×