Fótbolti

Eto´o sá þriðji marksæknasti í sögu Barcelona

Samuel Eto´o hefur skorað mjög grimmt fyrir Barcelona
Samuel Eto´o hefur skorað mjög grimmt fyrir Barcelona NordcPhotos/GettyImages

Næst þegar Samuel Eto´o spilar fyrir Barcelona verður það hans 100. leikur fyrir félagið. Aðeins tveir menn í ríkri sögu þessa fornfræga knattspyrnurisa hafa skorað meira í fyrstu 100 leikjum sínum fyrir félagið.

Eto´o hefur skorað hvorki meira né minna en 71 mark til þessa og aðeins Mariano Martin (90) og Ladislao Kubala (84) skoruðu meira í fyrstu 100 leikjum sínum fyrir Barca.

Eto´o hefur verið hjá Barcelona síðan árið 2004 og hefði eflaust verið búinn að skora meira í áfangaleiknum sínum ef hann hefði ekki lent í erfiðum meiðslum bæði á þessari leiktíð og þeirri síðustu.

Eto´o hefur þegar skorað meira en frægir kappar á borð við Rivaldo, Ronaldinho, Stoichkov, Patrick Kluivert, Salinas og Lineker svo einhverjir séu nefndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×