Fótbolti

Atletico tilbúið að selja Reyes

NordcPhotos/GettyImages

Nú þykir ljóst að sóknarmaðurinn Jose Antonio Reyes muni fara frá Atletico Madrid eftir að þjálfarinn Javier Aguirre tjáði stjórn félagsins að hann gæti ekki treyst á hann.

Reyes var keyptur til Atletico frá Arsenal fyrir 12 milljónir evra í sumar eftir að hafa verið í láni hjá Real Madrid, en hann lítið sem ekkert spilað fyrir liðið og hefur brugðist væntingum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×