Fótbolti

Metzelder á heimleið?

Metzelder hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Real
Metzelder hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Real NordcPhotos/GettyImages

Þýski varnarmaðurinn Christoph Metzelder hjá Real Madrid er sagður vera einn þeirra sem farið gætu frá Real Madrid í sumar. Hann var keyptur til liðsins frá Dortmund í fyrrasumar en hefur ekki náð sér á strik í vetur - sumpart vegna meiðsla.

Spænskir fjölmiðlar vilja meina að minnst fimm leikmenn fari frá Real í sumar og er nafn Metzelder jafnan eitt af þeim. Því er haldið fram að hann fari jafnvel aftur til gamla liðsins Dortmund í Þýskalandi, en hann er reyndar samningsbundinn Real til ársins 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×