Fótbolti

Fabregas vill Barcelona í úrslitum

NordcPhotos/GettyImages

Spánverjinn Cesc Fabregas hjá Arsenal vill gjarnan sleppa við Barcelona þegar dregið verður í 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni á föstudaginn. Hann vill helst mæta Katalóníuliðinu í úrslitaleiknum í Moskvu.

"Það væri best að sleppa við þá þangað til í úrslitaleiknum eftir það sem gerðist í París fyrir tveimur árum," sagði Fabregas og vísaði til úrslitaleiksins það árið þegar Barcelona hafði betur í úrslitaleik.

"En ef við mætum Barcelona í næstu umferð, munum við mæta tvíefldir til leiks og reyna að vinna þá, því við trúum því að við getum það," sagði Fabregas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×