Fótbolti

Seedorf tæpur fyrir leikinn gegn Arsenal

NordcPhotos/GettyImages

Hollendingurinn Clarence Seedorf mun líklega missa af síðari leik AC Milan og Arsenal í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku. Miðjumaðurinn Emerton verður ekki með í leiknum, en landi hans Kaka verður líklega búinn að jafna sig á meiðslum eftir að hann var hvíldur í deildarleik um helgina.

Robin van Persie gæti orðið í hóp Arsenal fyrir leikinn í vikunni en hann hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Fyrri leikur liðanna fór fram í Lundúnum og lauk með markalausu jafntefli. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×