Fótbolti

Celtic hefur yfir gegn Barcelona

Jan Vennegoor of Hesselink skoraði fyrra mark Celtic
Jan Vennegoor of Hesselink skoraði fyrra mark Celtic Nordic Photos / Getty Images

Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Glasgow Celtic hefur yfir 2-1 á heimavelli gegn Barcelona í hörkuleik þar sem heimamenn hafa skorað úr báðum færum sínum í leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona.

Jan Vennegoor of Hesselink kom Celtic yfir í leiknum en Barcelona jafnaði aðeins tveimur mínútum síðar með marki Leo Messi. Það var svo Barry Robinson sem kom Celtic yfir á ný með glæsilegum skalla skömmu fyrir hlé og gerði allt vitlaust á Celtic Park.

Ekkert mark er komið á Emirates þar sem Arsenal tekur á móti Milan og sömu sögu er að segja af leik Manchester United og Lyon í Frakklandi þar sem bæði lið hafa fengið fín færi til að skora.

Þá er staðan jöfn 1-1 í hálfleik hjá Fenerbahce og Sevilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×