Fótbolti

Eiður í leikmannahópi Barcelona

Eiður Smári í leik með Barcelona.
Eiður Smári í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni á morgun.

Þrír leikmenn eru nú heilir á ný eftir meiðsli og eru í leikmannahópi Frank Rijkaard. Um er að ræða þá Carles Puyol, Deco og Bojan Krkic. Þá er Touré Yaya einnig með en hann er kominn aftur eftir þar sem að Afríkukeppninni er lokið.

Samuel Eto'o meiddist hins vegar í úrslitaleiknum í Afríkukeppninni og er af þeim sökum ekki með um helgina. Þeir Albert Jorquera, Santi Ezquerro, Gianluca Zambrotta, Oleguer og Sylvinho eru allir frá vegna meiðsla.

Hópurinn er þannig skipaður: Valdés, Pinto, Xavi, Iniesta, Puyol, Márquez, Henry, Ronaldinho, Milito, Messi, Thuram, Abidal, Eiður Smári Guðjohnsen, Edmílson, Bojan, Giovani, Deco og Touré.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×