Fótbolti

Real Madrid skoraði sjö gegn Valladolid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arjen Robben skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid á tímabilinu í dag.
Arjen Robben skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid á tímabilinu í dag. Nordic Photos / AFP

Real Madrid styrkti heldur betur stöðu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 7-0 sigri á Valladolid.

Julio Baptista kom Real Madrid yfir á níundu mínútu og Madrídingar bættu við fjórum mörkum á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleiks. Raúl skoraði tvö, þar af eitt úr víti, Arjen Robben og Guti eitt hver.

Guti skoraði svo sjötta mark Real Madrid á 62. mínútu og Royston Drenthe svo sjöunda markið á 80. mínútu.

Real Madrid er nú með 56 stig og átta stiga forystu á Barcelona á toppi deildarinnar. Liðið er með fjórtán stiga forystu á Villarreal sem er í þriðja sæti.

Valladolid er í þrettánda sæti deildarinnar með 27 stig. 23. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar lýkur svo í kvöld klukkan 20.00 með leik Valencia og Real Betis.

Úrslit annarra leikja í dag:

Athletic Bilbao - Levante 1-0

Espanyol - Recreativo 1-2

Real Mallorca - Almeria 0-0

Osasuna - Zaragoza 1-0

Racing Santander - Atletico Madrid 0-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×