Fótbolti

Cruyff: Hef aldrei stutt Mourinho

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Johan Cruyff.
Johan Cruyff. Nordic Photos / AFP

Johan Cruyff segist aldrei hafa sagt að hann vilji fá Jose Mourinho sem næsta knattspyrnustjóra Barcelona.

Fréttir þess efnis hafa birst í spænskum fjölmiðlum undanfarna daga en haft var eftir honum að Barcelona ætti að reka Frank Rijkaard og ráða Mourinho í hans stað.

„Þetta eru algjör ósannindi," sagði Cruyff. „Í fyrsta lagi vegna þess að Rijkaard er með samning til 2009 og í annan stað vegna þess að hann er vinur minn."

„Enginn í stjórn Barcelona hefur spurt mig álits á Mourinho og held ég að Rijkaard ætti að vera áfram vegna þess að félagið þarf á stöðugleika að halda."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×