Fótbolti

Jafnt hjá Barcelona og Villarreal

Eiður var varamaður í kvöld
Eiður var varamaður í kvöld AFP

Barcelona gerði í kvöld 0-0 jafntefli við Villarreal í fyrri leik liðanna í fjórðungsúrslitum spænska konungsbikarsins. Heimamenn í Villarreal fengu betri færi í leiknum en Victor Valdez markvörður kom í veg fyrir tap Barcelona sem nú á síðari leikinn eftir á heimavelli.

Eiður Smári Guðjohnsen kom inn sem varamaður og lék síðustu 10 mínúturnar eða svo. Fyrr um kvöldið vann Racing góðan 2-0 sigur á Bilbao og er því í góðri stöðu til að komast í undanúrslit keppninnar í fyrsta skipti í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×