Fótbolti

Eiður byrjar gegn Sevilla

Elvar Geir Magnússon skrifar
Eiður Smári í baráttunni.
Eiður Smári í baráttunni.

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Sevilla í spænska bikarnum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður í beinni útsendingu á Sýn Extra.

Þetta er seinni viðureign þessara liða en sá fyrri endaði með jafntefli 1-1 á heimavelli Sevilla. Sigurvegarinn í kvöld kemst í átta liða úrslit keppninnar.

Eiður skoraði eitt af mörkum Barcelona þegar liðið vann Murcia 4-0 í spænsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Byrjunarlið Barcelona: Valdes, Zambrotta, Puyol, Milito, Abidal, Marquez, Xavi, Eiður Smári, Iniesta, Giovani, Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×