Fótbolti

Eiður Smári: Leið vel frá fyrstu mínútu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leiknum í gær.
Eiður Smári í leiknum í gær. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen sagði eftir leik Barcelona og Real Murcia í gær að hann væri hæstánægður með sigur sinna manna.

Barcelona vann leikinn, 4-0, og skoraði Eiður Smári fyrsta mark leiksins á 26. mínútu leiksins eftir fyrirgjöf Gianluca Zambrotta.

„Mér leið vel strax frá fyrstu mínútu," sagði Eiður við heimasíðu Barcelona eftir leik. „Við áttum auðvelt með að spila okkar leik og það var mikilvægur þáttur í fyrsta markinu. En leikmenn Murcia voru þó vel staðsettir í sínum varnarleik."

„Ég verð að þakka Zambrotta og Thierry Henry sérstaklega fyrir því þeir áttu stóran hlut í markinu. Hlaup Henry á nærstöngina hjálpaði mér mikið."

„Áhorfendur voru að vonast eftir einhverju meira en við höfum sýnt að undanförnu og ég held að sigurinn í dag hafi verið mjög góður."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×