Fótbolti

Rooney baðst afsökunar á leikaraskap

Wayne Rooney
Wayne Rooney NordicPhotos/GettyImages

Sir Alex Ferguson segir að Wayne Rooney hafi beðið sig og leikmenn Villarreal afsökunar á því að hafa látið sig falla í leik Manchester United við spænska liðið í gær.

Leikmenn Villarreal voru æfir þegar Rooney féll í teignum án þess að komið hefði verið við hann.

"Hann bað mig og leikmenn Villarreal afsökunar og sagðist ekki hafa gert þetta viljandi. Ég held að hann sé búinn að horfa of mikið á Robert Pires spila. Rooney baðst þó að minnsta kosti afsökunar. Það myndi Pires aldrei gera," sagði Ferguson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×