Enski boltinn

Adebayor frá í þrjár vikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emmanuel Adebayor, leikmaður Arsenal.
Emmanuel Adebayor, leikmaður Arsenal. Nordic Photos / Getty Images

Emmanuel Adebayor verður ekki með Arsenal næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla og missir þar með af leiknum gegn Fenerbahce í Meistaradeildinni í kvöld.

Adebayor meiddist á ökkla er Arsenal tapaði fyrir Stoke um helgina, 2-1. Hann var tæklaður af Ryan Shawcross en eftir leikinn sakaði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, leikmenn Stoke um að hafa vísvitandi reynt að slasa leikmenn sína í leiknum.

Hann missir af mörgum stórleikjum Arsenal í deildinni, meðal annars gegn Manchester United, Aston Villa, Manchester City og mögulega Chelsea en sá leikur fer fram þann 30. nóvember.

Adebayor missir líklega einnig af leik Arsenal gegn Dynamo Kiev í Meistaradeildinni síðar í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×