Matur

Eggaldinsteik fyllt með ostapestó fyrir fjóra

1 stk eggaldin skorið eftir endilöngu í passlegar stærðir og steikkt á þurri pönnu í smá stund

Spelt raspur eða venjulegur brauðraspur settur í form fyrir panneringu

2 stk egg slegin og sett í form fyrir panneringu

2 stk tómatar skornir í sneiðar



Aðferð

Eggaldinið er smurt með pestóinu. Síðan er tómötum raðað á og annarri eggaldinsneið er bætt ofan á. Þetta er gert við alla skammtana.

Síðan er þessu dýft í egginn og svo pannerað upp úr raspinu. Þetta er gert einu sinni enn og ætti þá að vera kominn góður hjúpur utan um

Þetta er síðan steikt á pönnu með olíu á passlegum hita og steikt báðum megin. Þetta er síðan bakkað upp á diska með seljurótarmaukinu og goðu salati.

Pestó

1stk basilbúnt

Lúka af spínati

1stk hvítlauksrif

100gr kassíuhnetur

1dl ólífu olía

100gr rifinn ostur

1matsk dijon sinnep

Salt og pipar

Aðferð

Allt sett í blender nema sinnepið og osturinn. Þegar þetta er orðið grænt og fallegt þá er sinnepinu og ostinum blandað saman og þetta smakkað til.

Seljurótarmauk

½ seljurót meðalstór skorin í grófa teninga

2stk kartöflur meðalstórar skornar í sneiðar

1stk lítill lalukur skorinn í sneiðar

½ rauður chili fræhreinsaður og skorinn í þunnar sneiðar

Lúka spínati

4stk hvítlauks rif

Ólífu olía

Salt og pipar

Aðferð

Allt sett í pott nema spínatið og svitað aðeins með olíunni og kryddað til. Síðan er sirka 1,5 dl vatni sett í (má einnig vera rjómi ef vill lúxus útgáfan) og lok er sett á. Látið sjóða í rólega í sirka 20 mínútur. Þá er þetta tekið af hitanum og athugað hvort allt sé ekki orðið passlega mjúkt og gott.

Ef það er of mikið vatn í pottinum þá er gott að hella aðeins af því í skál ef ske kynni að þið vilduð bæta meiru í.

Síðan er þetta stappað með grófum písk þar til ykkur finnst þetta vera mátulegt (má einnig taka þetta í blender og gera þetta að mjúku mauki. Síðast er spínatinu bætt í og það er velt saman með sleif til að hafa það gróft. Þetta er síðan sett til hliðar með loki á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.