Fótbolti

Liverpool yfir í hálfleik

NordicPhotos/GettyImages

Liverpool hefur yfir 1-0 á útivelli gegn Atletico Madrid þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leikjunum í Meistaradeildinni.

Robbie Keane skoraði mark gestanna á 14. mínútu og fór svo mjög illa með dauðafæri skömmu síðar. Heimamenn í Atletico hafa ekki verið sérlega sannfærandi í leiknum.

Inter hefur yfir 1-0 gegn Anorthosis á heimavelli sínum, jafnt er hjá Panathinaikos og Bremen 1-1 og Barcelona hefur yfir 3-0 á útivelli gegn Basel þar sem Messi, Busquets og Krkic skoruðu mörk Börsunga.

Ekkert mark er komið í leikjum Bordeaux-Cluj, Chelsea-Roma, Shaktar-Sporting og PSV-Marseille.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×