Fótbolti

Benitez vonast til að Torres verði með á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fernando Torres í leik með Liverpool.
Fernando Torres í leik með Liverpool. Nordic Photos / Getty Images

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, vonast til þess að Fernando Torres verði með liðinu þegar það mætir hans gamla félagi, Atletico Madrid, í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Leikurinn fer fram á heimavelli Liverpool en Torres hefur misst af síðustu fimm leikjum liðsins síðan hann meiddist í landsleik Spánverja og Belga í upphafi október.

„Ef hann getur ekki verið í byrjunarliðinu verður hann á bekknum ef það er mögulegt," sagði Benitez. „Auðvitað vill hann fá að spila á ný og hann var einkar svekktur með að missa af fyrri leiknum gegn Atletico."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×