Fótbolti

Gerrard: Þetta var réttur dómur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hér fellur Gerrard og vítaspyrna var dæmd.
Hér fellur Gerrard og vítaspyrna var dæmd.

Steven Gerrard segir að dómarinn í leik Liverpool og Atletico Madrid hafi tekið rétta ákvörðun með því að gefa sér vítaspyrnu í kvöld.

Hann viðurkennir þó að þurfa að skoða atvikið betur á sjónvarpsupptökum og spurning hvort afstaða hans breytist eftir það.

Dæmd var vítaspyrna í uppbótartíma og úr henni skoraði Gerrard jöfnunarmark Liverpool 1-1.

„Ég skil vonbrigði Atletico Madrid vegna tímapunktsins í leiknum þegar við fáum vítið. Við höfðum líka brugðist svona við ef þetta hefði gerst á hinum helmingi vallarins. En svona er fótboltinn og við verðum að horfa fram á veginn," sagði Gerrard.

Leikmenn Atletico Madrid brugðust mjög illa við dómnum og héldu mótmælin áfram eftir að flautað hafði verið til leiksloka. Í endursýningu sést vel að þeir höfðu eitthvað til síns máls.

„Ég þarf að skoða þetta atvik betur en í mínum huga var þetta réttur dómur. Ég var á undan í boltann en hann fer í bakið á mér. Hefði þetta gerst fyrir utan teig hefði verið dæmd aukaspyrna svo það var rétt að dæma víti," sagði Gerrard.

„Þetta var mjög mikilvægt stig fyrir okkur. Góð lið tapa venjulega ekki tveimur leikjum í röð svo það var mikilvægt að fá eitthvað út úr þessum leik. Við sýndum mikinn karakter og erum í góðri stöðu í riðlinum. Við lékum ekki nægilega vel í fyrri hálfleik en vorum mun betri í þeim síðari."

Smelltu hér til að sjá vítaspyrnudóminn




Tengdar fréttir

Liverpool jafnaði í viðbótartíma - Chelsea tapaði

Seinni umferðin í riðlum A-D í Meistaradeild Evrópu hófst í kvöld. Chelsea gerði ekki góða ferð til Rómar og lenti þremur mörkum undir áður en John Terry minnkaði muninn. Deco fékk síðan að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×