Sport

Varð í öðru sæti á Norðurlandamóti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kjartan Jónsson.
Kjartan Jónsson.

Kjartan Jónsson, Íslandsmeistari í leiðsluklifri, varð um helgina í öðru sæti á Norðurlandamóti unglinga sem fór fram í Eskilstuna í Svíþjóð. Kjartan er Íslandsmeistari í 13-15 ára flokki drengja og keppti í flokki 14-15 ára drengja í Svíþjóð.

Yfir 100 keppendur tóku þátt í mótinu en Klifurfélag Reykjavíkur átti tvo fulltrúa, þá Kjartan og Andra Má Ómarsson sem varð í ellefta sæti á mótinu.

Það var keppandi frá Svíþjóð sem bar sigur úr býtum í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×