Fótbolti

Maradona vill Mascherano sem fyrirliða

Elvar Geir Magnússon skrifar
Diego Maradona ætlar að gera Javier Mascherano að fyrirliða argentínska landsliðsins.
Diego Maradona ætlar að gera Javier Mascherano að fyrirliða argentínska landsliðsins.

Diego Maradona var í kvöld opinberlega kynntur sem nýr þjálfari landsliðs Argentínu. Carlos Bilardo, sem var þjálfari þegar Maradona lyfti heimsmeistarabikarnum 1986, verður aðstoðarmaður hans.

Maradona opinberaði það á blaðamannafundinum í kvöld að hann vill gera Javier Mascherano, miðjumann Liverpool, að fyrirliða Argentínu. Javier Zanetti hefur verið fyrirliði liðsins.

„Ég vil að Mascherano verði fyrirliði því hann gefur sig alltaf allan í leikina. Þannig menn vil ég að klæðist búningi Argentínu. Þá er hann mjög náinn samherjum sínum," sagði Maradona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×