Fótbolti

Hugo Sanchez tekur við Almeria

NordicPhotos/GettyImages

Hugo Sanchez hefur verið ráðinn þjálfari spænska liðsins Almeiria eftir að það rak Gonzalo Arconada á dögunum.

Sanchez er almennt álitinn besti knattspyrnumaður sem komið hefur frá Mexíkó og skoraði ófá mörkin fyrir landsliðið og Real Madrid á níunda áratugnum.

Sanchez er fimmtugur og tók við mexíkóska landsliðinu árið 2006, en hann var rekinn í mars á þessu ári. Hann tekur við Almeria í 16. sæti spænsku deildarinnar eftir að það tapaði 1-0 fyrir Sporting Gijon um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×