Fótbolti

Laporta: Ronaldinho þarf nýja áskorun

NordicPhotos/GettyImages

Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að Brasilíumaðurinn Ronaldinho þurfi líklega að fara frá félaginu til að ná sér á strik á ný eftir dapra leiktíð þar sem hann átti í erfiðleikum vegna meiðsla.

"Hann þarf nýja áskorun. Ég vil að Ronaldinho verði kvaddur með virtum svo hans verði minnst fyrir allt það sem hann hefur gefið okkur," sagði Laporta.

Laporta viðurkennir að hugsanlega muni reynast erfitt að selja kappann þar sem hann var aðeins 13 sinnum í byrjunarliði barcelona í 38 deildarleikjum í vetur.

Talið var víst að Brasilíumaðurinn færi til AC Milan í sumar, en ekkert varð af því þar sem félögin gátu ekki komið sér saman um kaupverð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×