Íslenski boltinn

Pála Marie framlengir við Val

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Valur.is
Mynd/Valur.is

Pála Marie Einarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Íslandsmeistara Vals en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Nýr samningur hennar er til tveggja ára.

Pála kemur upphaflega frá Haukum en gekk til liðs við Val árið 2002 og hefur spilað 102 leiki fyrir Val og skorað í þeim þrjú mörk. Þá hefur hún leikið 5 A-landsleiki, síðast á Algarve Cup 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×