Fótbolti

Vann báða leikina gegn Barcelona í fyrsta skipti í 24 ár

NordcPhotos/GettyImages

Spánarmeistarar Real Madrid hafa góða ástæðu til að fagna þessa dagana. Liðið vann á dögunum annan meistaratitil sinn í röð og með 4-1 sigri á Barcelona í gær vann liðið þar með báða deildarleiki sína gegn Barcelona í fyrsta sinn í 24 ár.

Real hafði ekki unnið báða deildarleiki sína gegn Barcelona síðan leiktíðina 1983-84.

Real Madrid hefur alls 14 sinnum í sögunni náð þessari tvennu gegn Barcelona, Bilbao hefur gert það níu sinnum, Atletico sex sinnum og Sevilla þrisvar sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×