Fótbolti

Iniesta að snúa aftur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Andres Iniesta er að snúa aftur.
Andres Iniesta er að snúa aftur.

Andres Iniesta, miðjumaður Barcelona, er að jafna sig á meiðslum sem hafa haldið honum frá keppni í tvo mánuði. Spænski landsliðsmaðurinn komst í gegnum æfingu í dag án þess að finna fyrir neinu.

Iniesta gæti verið í leikmannahópi Barcelona sem mætir Mallorca á laugardag.

„Það verður frábært fyrir okkur að fá Andres aftur og hann mun styrkja okkur í baráttunni seinni helming móts," sagði Pep Guardiola, þjálfari Börsunga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×