Fótbolti

Barcelona hafði betur í risaslagnum

Menn tókust hart á í El Clasico í kvöld
Menn tókust hart á í El Clasico í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Barcelona vann í kvöld 2-0 sigur á erkifjendum sínum í Real Madrid í uppgjöri risanna í spænska boltanum.

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld og átti fínan leik, en úrslit leiksins réðust ekki fyrr en í blálokin þrátt fyrir góð tilþrif frá báðum liðum.

Maður leiksins var líklega Iker Casillas í marki Real Madrid, því hann hélt sínum mönnum inni í leiknum.

Eiði Smára var skipt af velli eftir rúmlega klukkutíma leik og varamaður hans Sergi Busquet fiskaði vítaspyrnu skömmu síðar. Casillas varði hinsvegar spyrnuna frá Samuel Eto´o og leikurinn því enn í járnum.

Eto´o bætti svo fyrir mistök sín á 83. mínútu þegar hann kom Barcelona yfir eftir snarpa sókn og argentínska undrabarnið Leo Messi innsiglaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma.

Sigur Börsunga var verðskuldaður því þeir voru allan tímann líklegri til að skora. Real átti á löngum köflum undir högg að sækja í leiknum og Juande Ramos þjálfari liðsins á mikið verk fyrir höndum, en hann var þarna að stýra liðinu í fyrsta skipti í deildinni eftir að hafa tekið við liðinu í vikunni.

Barcelona hefur nú átta stiga forystu á toppi deildarinnar - hefur 38 stig - 12 stigum meira en Real.

Valencia er í öðru með 30 stig og Villarreal hefur 29 stig í þriðja sætinu og á leik til góða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×