Enski boltinn

Barcelona staðfestir áhuga sinn á Hleb

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Hleb, leikmaður Arsenal.
Alexander Hleb, leikmaður Arsenal. Nordic Photos / Getty Images

Barcelona hefur staðfest að félagið eigi í viðræðum við Arsenal um kaup á Hvítrússanum Alexander Hleb sem hefur einnig verið orðaður við Inter Milan.

Varaforseti Barcelona, Marc Ingla, sagði að viðræður væru enn í gangi. „En þó svo að hann sé leikmaður sem býr yfir sérstökum hæfileikum þá erum við með aðra möguleika í huga ef félagið hans vill ekki selja hann," sagði Ingla.

Hleb hefur rætt við Arsenal um að framlengja samning sinn við félagið en líklegast þykir að hann fari frá því nú í sumar.

Áhugi Inter á Hleb varð að engu þegar að Jose Mourinho tók við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×