Fótbolti

Marquez veit ekki við hverju má búast

Elvar Geir Magnússon skrifar
Rafael Marquez með Seydou Keita á bakinu.
Rafael Marquez með Seydou Keita á bakinu.

Rafael Marquez, varnarmaður Barcelona, viðurkennir að Börsungar viti ekki við hverju megi búast frá andstæðingum sínum í Real Madrid þegar liðin mætast á laugardagskvöld.

„Þjálfaraskiptin hjá þeim gera það að verkum að Real Madrid verður annað lið en það sem hefði komið undir stjórn Bernd Schuster. Við þekktum það lið vel en vitum ekki hvernig Juande gerir hlutina," sagði Marquez.

„Við ætlum að halda áfram að spila eins og við höfum verið að gera. Þrátt fyrir að það sé stórleikur þá eru menn mjög yfirvegaður. Við ætlum að fá fólk til að gleyma 4-1 tapinu á síðustu leiktíð," sagði Marquez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×