Fótbolti

Mörg Meistaradeildarmet nálægt því að falla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Josep Llorente fagnar einu þriggja marka sinna í gær.
Josep Llorente fagnar einu þriggja marka sinna í gær. Nordic Photos / AFP

Flest mörk á einu kvöldi, fljótastur að skora þrennu, sigur eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og næstflest mörk í einum leik. Það voru ófá metin sem voru nálægt því að falla í Meistaradeild Evrópu í gær.

Fyrst skal nefna að 36 mörk voru skoruð í átta leikjum Meistaradeildarinnar sem er metjöfnun. Sami markafjöldi var skoraður þann 13. september árið 2000 eða 4,5 mörk að meðaltali í leik.

Reyndar voru 44 mörk skoruð á einu og sama kvöldinu þann 1. október 1997 en þá fóru tólf leikir fram og meðalfjöldi marka ekki nema 3,67 mörk í leik.

Alls voru níu mörk skoruð í leik Villarreal og Álaborgar í gær en það eru næstflest mörk sem hafa verið skoruð í einum og sama leiknum. Metið stendur enn en það var sett þegar að Monaco vann 8-3 sigur á Deportivo La Coruna í nóvember 2003.

Reyndar hefur það tvívegis gerst áður að níu mörk eru skoruð í einum leik en báðir þeir lauk með 7-2 franskra liða, Lyon (gegn Werder Bremen, 2005) og Paris Saint-Germain (gegn Rosenborg, 2000).

Þess má svo einnig geta að átta mörk voru skoruð í leik Steaua Búkarest og Lyon í gær en þeir frönsku unnu 5-3 sigur. Það var í ellefta sinn sem átta mörk líta dagsins ljós í einum leik.

Lyon komst reyndar einnig í metabækurnar í gær fyrir að vinna leik eftir að hafa lent tveimur mörkum undir á útivelli. Steaua komst í 2-0 en varð að sætta sig við tap. Fjögur önnur lið hafa einnig afrekað hið sama og Lyon.

Það tók Joseba Llorente, leikmann Villarreal, ekki nema sautján mínútur að skora þrennu í leiknum gegn Álaborg í gær. Það er næstskemmsti tími sem leikmaður hefur þurft til að skora þrennu.

Metið á Mike Newell, fyrrum leikmaður Blackburn, sem skoraði þrennu á níu mínútum í 4-1 sigurleik liðsins gegn Rosenborg í desember árið 1995.

Að síðustu má einnig geta þess að Dimitar Berbatov skoraði í gær 250. mark Manchester United í Meistaradeildinni frá upphafi. Um var að ræða fyrra mark Berbatov í leiknum.

United hefur skorað næstflest mörk í aðalkeppni Meistaradeildarinnar en Real Madrid trónir á toppi þess lista með 268 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×