Fótbolti

Celtic hefur yfir í hálfleik

NordicPhotos/GettyImages

Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum átta sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Celtic frá Skotlandi hefur yfir 1-0 gegn Manchester United í hálfleik þar sem Scott McDonald skoraði mark heimamanna á 13. mínútu.

Í hinum leiknum í E-riðli hefur Villarreal yfir 1-0 gegn AaB á útivelli með marki Giuseppe Rossi á 41. mínútu.

Í F-riðli hefur Fiorentina yfir 1-0 gegn Bayern með marki Adrian Mutu á 11. mínútu og Lyon er 1-0 yfir gegn Steua með marki Juninho á 44. mínútu.

Í G-riðli er markalaust hjá Arsenal og Fenerbahce og Dynamo Kyiv hefur yfir 1-0 gegn Porto.

Í H-riðlinum hefur Zenit yfir 1-0 á útivelli gegn BATE og Juventus hefur yfir 1-0 á útivelli gegn Real Madrid þar sem gamla brýnið Alessendro del Piero skoraði mark ítalska liðsins á 17. mínútu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×