Tónlist

Zeppelin-dúett breytir um nafn

Ekkert Led Zeppelin Jimmy Page hyggst ekki notast við Led Zeppelin-nafnið þegar hann ferðast um heiminn með John Paul Jones og Jason Bonham.
Ekkert Led Zeppelin Jimmy Page hyggst ekki notast við Led Zeppelin-nafnið þegar hann ferðast um heiminn með John Paul Jones og Jason Bonham.

Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans," segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans.

Aðdáendur rokkgrúppunnar hefur lengi dreymt um að fá Led Zeppelin saman á ný. Þeir draumar virtust ætla að rætast þegar þeir tróðu upp til minningar um útgefanda sinn, Ahmet Ertegun. Þar fóru þeir á kostum og spiluðu marga af sínum þekktustu slögurum, áhorfendum til mikillar gleði. Í janúar leit allt út fyrir að Zeppelin kæmi saman og myndi halda í tónleikaferð en það var slegið af í lok síðasta mánaðar. Nafnið Led Zeppelin hefur jafnframt verið lagt til hliðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.