Fótbolti

Eiður skoraði tvívegis í stórsigri Barcelona

NordcPhotos/GettyImages

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld þegar liðið vann 6-0 stórsigur á skoska liðinu Hibernian í æfingaleik. Eiður skoraði fyrsta og þriðja mark Barcelona á 5. og 17. mínútu leiksins.

Messi, Toure, Pedrito og Krkic voru einnig á skotskónum hjá Barcelona í kvöld, en Eiði var skipt af velli á 70. mínútu fyrir Samuel Eto´o og smellti hann kossi á Kamerúnmanninn um leið og hann skokkaði af velli.

Nokkrir æfingaleikir voru á dagskrá í kvöld og þar má nefna að Middlesbrough tapaði 1-0 fyrir Victoria Guimaraes, Lyon vann Nancy 3-0 og Kaizer Chiefs lagði Orlando Pirates 2-0 á Suður-Afríkumótinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×