Fótbolti

Gautaborg úr leik í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Basel og Gautaborgar.
Úr leik Basel og Gautaborgar. Nordic Photos / AFP
Íslendingaliðið IFK Gautaborg datt í kvöld úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wisla Krakow mætir Barcelona í þriðju umferð keppninnar.

Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku báðir allan leikinn fyrir Gautaborg í kvöld sem tapaði, 4-2, fyrir Basel í Sviss, og samanlagt 5-3.

Wisla Krakow frá Póllandi hafði betur í slagnum við Beitar Jerusalem og mætir Eiði Smára Guðjohnsen og félögum í Barcelona þriðju og síðustu umferð forkeppninnar.

Artmedia Bratislava mætir Juventus í þriðju umferðinni en hér fyrir neðan má sjá alla leiki umferðarinnar, sem og úrslitin í annarri umferðinni.

Úrslit í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar:

Brann - Ventspils 2-2*

Inter Baki - Partizan 1-3

Drogheda - Dynamo Kiev 3-4

Rangers - Kaunas 1-2

Tampere United - Artmedia 3-7

Sheriff - Sparta 0-3

AaB - Modrica 7-1

Beitar Jerusalem - Wisla Krakow 2-6

Fenerbahce - MTK 7-0

IFK Gautaborg - Basel 3-5

Anderlecht - BATE 3-4

Panathinaikos - Dinamo Tbilisi 3-0

Domzale - Dinamo Zagreb 2-6

- feitletruð lið komust áfram

- samanlögð úrslit

* Brann komst áfram á marki á útivelli

Leikir í þriðju umferðinni:

Anorthosis Famagusta (Kýpur) - Olympiakos (Grikklandi)

Vitoria SC (Portúgal) - Basel (Sviss)

Shaktar Donetsk (Úkraínu) - Dinamo Zagreb (Króatíu)

Schalke (Þýskalandi) - Atletico Madrid (Spáni)

Álaborg (Danmörku) - Kaunas (Litháen)

Barcelona (Spáni) - Wisla Krakow (Póllandi)

Levski Sofia (Búlgaríu) - BATE Borisov (Hvíta-Rússlandi)

Standard Liege (Belgíu) - Liverpool (Englandi)

Patrizan (Serbíu) - Fenerbahce (Tyrklandi)

FC Twente (Hollandi) - Arsenal (Englandi)

Spartak Moskva (Rússlandi) - Dynamo Kiev (Úkraínu)

Juventus (Ítalíu) - Artmedia Bratislava (Slóvakíu)

Brann (Noregi) - Marseille (Frakklandi)

Fiorentina (Ítalíu) - Slavia Prag (Tékklandi)

Galatasaray (Tyrklandi) - Steaua Búkarest (Rúmeníu)

Panathinaikos (Grikklandi) - Sparta Prag (Tékklandi)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×