Fótbolti

Diarra búinn að semja við Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lassana Diarra hefur leikið sinn síðasta leik með Portsmouth.
Lassana Diarra hefur leikið sinn síðasta leik með Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Lassana Diarra gekk í dag frá samkomulagi við Real Madrid og mun ganga til liðs við félagið um áramótin ef hann stenst læknisskoðun á mánudaginn.

Diarra mun skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við Real Madrid ef allt fer eftir óskum.

Fullyrt er að Real Madrid hafi boðið 20 milljónir evra í Diarra en hann var einnig orðaður við önnur lið, svo sem Manchester City.

Diarra hóf ferill sinn hjá Le Havre í Frakklandi en fór til Chelsea árið 2005. Þaðan fór hann til Arsenal í ágúst 2007 en var seldur til Portsmouth aðeins fimm mánuðum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×